Friday, December 19, 2008

Heim um jólin


Það tekur ekki lítið á að ferðast heim um jólin. Í fyrsta lagi þarf að hreinsa allt af skrifborðinu í vinnunni – og ég held að það sé loksins komið hjá mér. Svo þarf að koma hundinum fyrir einhvers staðar – fékk pláss á hundahóteli, sem er fínt, nema hvað hvuttinn fékk allsherjar kvef í vikunni og er rétt að jafna sig. Og að lokum þarf að ferðast með flugvélum – og þá er bara að bíða og vona.
Eftir mjög gott og hlýtt haust, ákvað Vetur Konungur að í dag skelli veturinn á. Það snjóar og snjóar hér í St. John´s, og ennþá meira í Toronto og Boston þar sem ég á að millilenda á morgun á leið minni heim um jólin. Fréttir af lokunum í Toronto og Boston í dag og öðrum stormi á sömu stöðum annað kvöld, gerir það að verkum að ég ætla að vera hóflega bjartsýn að komast á leiðarenda á tilsettum tíma (sunnudagsmorgun) og vera bara jákvæð – ef ég kemst fyrir Þorlák þá er ég ánægð :)

Friday, November 28, 2008

Ísland og Þakkargjörðin

Við Wissler erum í óðaönn að útbúa þakkargjörðarveislu sem verður á morgun... Það var sko ekki frí í Kanada í gær og því frestuðum við hátíðinni um tvo daga ;) Það verður allt að hætti Ameríkananna, og Wissler í essinu sínu í eldhúsinu :) Það tekur sko fjóra daga að þýða kalkúninn, þannig að það þýðir ekkert annað en að vera tímanlega!

Annað í fréttum er að við komum til Íslands 21.des og verðum fram yfir áramót... OG SVO... það er loksins komið að því... VIÐ FLYTJUM VIÐ HEIM Í LOK JANÚAR!!!!!!!!!!!!!!!!!! Wúhú!!! Hlakka svoooo til að hitta alla oftar en einu sinni á ári! En meira um það seinna...

Verð að halda áfram að elda...
Skál!

Tuesday, November 04, 2008

Hugarfar – úr einu í annað

Það er margt í lífinu sem kemur manni á óvart. Stundum koma hlutirnir manni skemmtilega á óvart, stundum miður. En ég er alltaf að komast betur að því að það sem skiptir máli er hvernig maður tekur því sem lífið færir manni. Er glasið hálf-fullt eða hálf-tómt? Þetta hljómar eins og gömul klysja, en er alveg dagsatt. Það erum við sem ákveðum hvernig við bregðumst við þegar hlutirnir fara ekki alveg eins og við áttum von á...

Það eru ófá leyfin sem við Wissler þurfum frá kaþólsku kirkjunni til að fá til að geta gift okkur. Ég er ekki kaþólsk, og því þarf hann leyfi til að gifast mér. Presturinn sem mun gifta okkur er ekki frá Minnesota fylki og því þarf hann leyfi til að mega framkvæma athöfnina. Kapellan þar sem giftingin mun fara fram er ekki kaþólsk og því þarf leyfi fyrir henni. Og síðast en ekki síst, þá þurfum við Wissler að standast brúðkaups undirbúningsnámskeið frá kaþólsku kirkjunni. (Kaþólska kirkjan vill greinilega gera þetta erfitt, en við erum til í hvaða þrautagöngu sem er ;) ) Þetta reddast allt, því það er nægur tími til stefnu og við máttum fara á þetta námskeið hjá kirkjunni hér í St. John´s J


Ég kemst ekki hjá því að minnast aðeins á þetta námskeið, en við fórum á það þarsíðustu helgi. Ég var meira en lítið stressuð áður en við fórum, því ég var ekki viss hvort við máttum segja frá því að við byggjum saman eða neitt. Svo þegar ég las kynningarbæklingnum sá ég að einn kúrsinn var um "healthy sexuality and intimacy" (!). Holy cow. Fór að velta fyrir mér hvort ég myndi verða vandræðaleg að ræða þetta í hóp, eða hvort ég myndi bara fá kjánahroll. EN, ég mætti á staðin – jákvæðnin uppmáluð – og þá kom á daginn að þetta var bara eðliegt spjall um samskipti fólks. Og ekkert minnst á "sexuality" – fjúkk. Fólkið sem stýrði námskeiðinu vissi nákvæmlega hvernig fólk lifir í dag og var ekkert að þykjast – enda ekki hægt þar sem flest fólkið á námskeiðinu var búið að vera saman yfir mörg ár og áttu börn (the jig is up). Í heild var þetta mjög skemmtilegt og fróðlegt námskeið þar sem talað var um ýmislegt: framtíðardrauma, peningamál, hvernig stuðla megi að góðum samskiptum, leiðir við að útkljá ágreiningsmál, og mikilvægi þess að rækta sambandið. Það er ekki allt svo galið hjá kaþólsku kirkjunni J


Síðustu helgi fór ég að sníkja (trick or treat!) með dóttur vinkonu minnar. Það er endalaust mikið gert úr Halloween hér í St. John´s – ég hef bara aldrei séð annað eins. Þeir skreyta eins mikið og við gerum á jólunum! En ekki kvarta ég, mér finnst alltaf gaman að gera sér dagamun J



Þá til Bandaríkjanna. Það kemur örugglega engum á óvart að í dag eru forsetakosningar í Bandaríkjunum. Þótt ég styðji Obama, þá finnst mér báðir kandídatarnir verðugir, ólíkt því sem var í síðustu kosningum þar sem mér fannst hvorugur spennandi kostur (Bush og Kerry). McCain hefur sannað að hann er maður orða sinna og með Obama kemur ferskleiki sem er þarfur eftir erfiðleika síðustu ára. Það er spennandi að vita hvort Bandaríkjamenn eru tilbúnir til að fá sinn fyrsta svarta forseta. En hvor sem vinnur, þá vona ég að USA hafi lagað kosningakerfið sitt. Ég horfði nefnilega á "Recount" um daginn, en það er mynd um kosningarnar árið 2000 þegar Flórída kosningarnar fóru í algjört mess. Kosningavélarnar klikkuðu, þúsundum manna var vísað frá kjörstöðunum vegna rangra sakargifta, og aðrar þúsundir kjörmiða voru aldrei taldir. Það var ótrúlegt að horfa á þessa mynd vitandi að þetta gerðist í alvörunni. En nú krossleggjum við bara fingur og vonum að sem flestir kjósi og allt gangi vel.... jú, og Obama vinnur ;) Það er eitthvað ofsalega spennandi við kosningar...


Og að lokum heim til Íslands. Við Íslendingar verðum þessa dagana að hugsa um allt það góða við landið okkar. Muna hvaðan við komum (Danir sögðu t.d. að við myndum aldrei geta staðið á eigin fótum) og meta okkur að verðleikum. Vera þakklát fyrir það sem við höfum og passa okkur að missa okkur ekki í bölsýninni. Við tölum eins og himinn og jörð séu að farast, enda sjást varla jákvæðar fréttir í fjölmiðlum. Fólk smitast nefnilega af hugarfari annarra; við dettum í neikvæðni þegar við erum í kringum neikvætt fólk og við lítum bjartari augum á málin þegar fólkið í kringum okkur er jákvætt. Rífum okkur uppúr þessu efnahagsástandi með yfirvegun og framtíðarsýn. Þess vegna vil ég enda á "dæmisögu um kreppuna" sem mamma sendi mér um daginn. Njótið vel J


Smá dæmisaga vegna hinnar svokölluðu "kreppu"

Íslensk kona hefur verið að styrkja námsmann í Uganda sem "óvænt varð á vegi hennar" eins og hún orðaði það. Hann var búinn að lofa að senda henni einkunnirnar sínar sem hann og gerði þegar þar að kom. Þar kom fram að hann hafði fengið A í öllum fögum og góða umsögn að auki. Það var nefnilega búið að gera honum ljóst að góður árangur væri lykillinn að því að hann fengi áframhaldandi styrk.


En allt er breytingum undirorpið í henni veröld og ýmislegt getur vissulega haft áhrif á afkomu Frónbúans og getu hans til að láta gott af sér leiða. Hún var að velta því fyrir sér hvort rétt væri að reyna að segja honum frá gangi mála hér á landi, þ.e. kreppunni og öllu því. Og það gæti því miður reynst nauðsynlegt að skera eitthvað niður styrkinn vegna hins breytta ástands hérna megin. Það eru nefnilega tiltölulega litlar líkur á því að fréttir af Íslenska skipbrotinu hafi borist alla leið til hans þarna í Entebbe. Og svo er alls ekki víst að hann skilji alvöru málsins á sama hátt og við hér heima. En ef reynt væri að útskýra hið Íslenska kreppuástand fyrir honum sem virðist ætla að fara langt með að sliga þjóðina einhver þó nokkur ár inn í framtíðina, gæti það samtal orðið á eftirfarandi nótum.




*Heyrðu félagi, það er úr vöndu að ráða. Íslenska þjóðin er gjaldþrota!


Hvað segirðu, en leiðinlegt að heyra, eigið þið þá ekki fyrir baunum og maís?


*Jú reyndar eru búðir fullar af mat og enginn vöruskortur.


Hvað segirðu, þið eigið þá mat. Það er gott. En eigið þiðþá ekki þak yfir höfuðið lengur!


*Jú við eigum reyndar íbúð eins og flestir og það eru fáir heimilislausir á Íslandi.


En hvað segirðu mér þá? Gengur plága yfir landið, eru allir veikir og heilbrigðiskerfið lamað?


*Nei nei reyndar ekki, við fáum nánast ókeypis læknaþjónustu og erum með ágætt heilbrigðiskerfi.


Nú jæja. Það var gott að heyra. En eru þá skólarnir að loka og fá kannski ekki allir tækifæri til að læra að lesa lengur og sérstaklega þá ekki konur.


*Jú reyndar er 99,9% læsi á Íslandi og menntakerfið er ágætt, margir með háskólagráður og konur ekki síður en karlar.


Það er nú gott, en þið verðið þá að passa er að lenda ekki í stríði við nágrannaþjóðir ykkar.


*Uuuu við erum reyndar ekki með her og teljumst nú frekar friðsæl þjóð. En við þurfum bara að hlusta á bullið og stríðsyfirlýsingarnar í fíflinu honum Gordon Brown. Það er það sem við munum líklega komst næst því að fara í stríð.


Ok. Segðu mér nú samt ekki að þið komist ekki í hreint vatn.


*Við eigum reyndar besta vatn í heimi.


Nú, er vegakerfið þá ónýtt? Hérna í Afríku ganga allir eða nota asna og stundum reiðhjól. Það eru líka til strætisvagnar hérna, en þeir eru alltaf yfirfullir.


Eru kannski strætóarnir hjá ykkur hættir að ganga?


*Neeee... Það er verið að ræða um hvort almenningssamgöngur hér eigi að vera ókeypis, en það eru flestallir vegir malbikaðir og næstum allir eru á nýlegum bílum.


Eigið þið þá enga peninga til að gera ykkur glaðan dag? Ég meina, þú sagðir að þjóðin væri gjaldþrota.


*Flestir eiga reyndar einhvern sparnað á bókum þó sumir hafi tapað honum eða hluta hans síðustu daga. Það verður alla vega erfitt að kaupa stærri flatskjái og utanlandsferðunum verður að fækka.


Já, ég á kannski einhvern tíma eftir að fara til útlanda, en ég er nú líka frá Uganda. Hefur kannski enginn vinnu og þurfið þið núna öll að betla?


*Neiiij...! Atvinnuleysið er um 2% en við verðum að flytja Pólverjana aftur heim og fara sjálf að vinna vinnuna sem þeir unnu.


Hmmm... Svo þið hafið peninga, mat, húsaskjól, heilbrigðiskerfi, menntakerfi, búið við frið, eigið nóg hreint vatn og samgöngur eru góðar.


Segðu mér, hvert var vandamálið aftur?


Eftir þessar vangaveltur um aðstæður okkar hérna uppi á skerinu og þetta ímyndaða samtal, ákvað hún að vera ekki að íþyngja honum með ræfilslegum áhyggjum sínum af "gjaldþrota" eyríki norður í ballarhafi. Námsgjöld hans skulu greidd hér eftir sem hingað til og kannski fær hann líka smá vasapening með. Hann getur þá kannski tekið strætó í skólann endrum og sinnum í stað þess að þurfa ganga í marga klukkutíma eins og venjulega. Fé hins meinta íslenska terrorista yrði þá líklega bara vel varið.

Wednesday, October 08, 2008

Ísland er land mitt

Jæja... nú hreinlega verður maður að blogga eitthvað. Atburðir síðust daga hafa eiginlega bara gert mann dofinn. En ég verð að segja eins og er... föðurlandsástin er bara sterkari ef eitthvað er!

Það er náttúrulega svakalegt hvernig komið er fyrir íslensku bönkunum og (næstum) íslenska ríkinu. En í ringulreiðinni sem virðist alsráðandi í kreppunni, þá þýðir ekkert annað en að átta sig á því hvað maður hefur það gott þrátt fyrir allt. Ég las nýverið bókina "Kona fer til læknis" sem er um brjóstakrabbamein, og ég er mjög þakklát fyrir að vera við góða heilsu. Ég sá þátt um fiskimenn í Kambódíu sem þakka fyrir það ef þeir ná að fæða fjölskylduna sína. Ég neita því ekki að það verður erfitt fyrir fólk að aðlagast breyttum aðstæðum... en nú verðum við að finna aftur einföldu hlutina sem skipta mestu máli en eiga það til að gleymast í góðærinu.

Ég elska Ísland. Punktur og pasta. Ástæða þess að mér finnst svo mikið til lands míns koma er ekki sú að okkur tókst að verða big shots á no time (enda var ég flutt úr landi þegar fólk/bankar fóru fram úr sér í góðærinu) heldur að við erum stolt þjóð sem leggur hart að sér. Okkar litla land á rosalega mikið af náttúruauðlindum og þess vegna getum við horft björtum augum á framtíðina. The best things in life are free og það á líka við um litla landið okkar. Gönguferðir um fallega náttúru... kíkja í heimsókn til nágrannans... bjóða vinum heim í spjall/spil/vídeó... þetta kostar ekkert :)

Og svona til að hjálpa landanum að rífa sig upp úr öllu vondu fréttunum, þá eru hér mín ráð við kreppunni:
1. Hreyfa sig... eitthvað sem maður hefur gaman af (hjóla, dansa, labba, o.s.fr.) - manni líður alltaf svo vel á eftir, og svo losar það einnig um spennu og streytu. Og jóga er náttúrulega frábært.
2. Hækka vel í græjunum þegar uppáhaldslagið kemur á fóninn (það er ekkert eins gaman og að syngja hástöfum þegar maður er einn í bílnum... bara að muna að setja cruise control á svo fóturinn verði ekki þungur:) )
3. Horfa bara á fréttir tvisvar á dag (þetta er ráðið hennar mömmu)... annars gerir maður ekki annað en að velta sér upp úr hlutum sem maður getur ekkert að gert
4. Heimsækja litla frænda sinn... sem er endalaust sætur og hefur engar áhyggjur af neinu :) híhí

Og svo áður en ég kveð þá vil ég bara segja ykkur frá því að hundurinn minn komst klakklaust í gegnum TVÖ FLUG.. frá Washington til Montreal til St. John´s. Var reyndar ekkert ánægður með okkur að skilja hann eftir í búrinu sínu hjá ókunnugu fólki... en líður nú svoooo vel hjá okkur á Paddy Dobbin Drive enda þvílíkur munur að hafa eigin garð :)

Svo vil ég óska Sólnýju frænku til hamingju með FRÁBÆRA ljósmyndasýningu (ég var sko ekki lengi að næla mér í eina mynd... maður verður nú að byrja að kaupa eitthvað innbú úr því að maður er "alveg" að fara að flytja heim)! Í alvörunni... þessar myndir voru sko ekkert smá listrænar og fallegar. Hjartanlega til hamingju!

Já og takk fyrir samveruna á Íslandi alle samen! Fótboltaballið var náttúrulega snilld (hverjum hefði getað dottið í hug að Bláa Lónið væri svona lekkert undir samkvæmi! p.s. myndirnar verða fljótlega settar á netið, ritskoðaðar náttúrulega ;) ) og allar hinar samkomurnar voru yndislegar. Hittingarnir áttu það sameiginlegt að það var ekkert skipulagt neitt mikið... bara reynt að hittast... og náttla endalaust gaman að spjalla :) . Sýnir manni bara það að maður á ekkert að mikla fyrir sér að fá fólk í heimsókn, eða að hóa vinkonurnar saman - bara njóta þess að vera saman :)

Kossar og knús...
Erla Ósk

Tuesday, September 23, 2008

Það er rétt hjá þér Petra Rós... lágmark að blogga einu sinni í mánuði ;)

Í fyrsta lagi... TAKK FYRIR ALLAR AFMÆLISKVEÐJURNAR!!! Ég fékk svo margar yndislegar kveðjur að ég hef ekki enn komið mér í að þakka öllum fyrir mig. Þúsund þakkir elskurnar! Kallinn minn var alveg æðislegur þessa helgi: fór með mig út að borða og dekraði við mig, og svo á afmælisdaginn fékk ég morgunmat í rúmið (heimabakaðar vöfflur!) Ekki skemmdi fyrir að hann gaf mér golfkylfur í afmælisgjöf :D Nú ætla ég að taka mig á og ná lægri forgjöf en Hæi! (eða amk reyna að fá einhverja forgjöf ;) )

Annars er allt gott af okkur að frétta... kallinn liggur yfir bókunum (er að taka fyrsta CFA prófið í desember) ... en ég er rosalega ánægð að vera komin með hann aftur :) Og ekki síðri fréttir eru þær að ég er á leiðinni heim í heila viku! Ég kem um helgina (já ég næ fótboltaballinu!!!) og verð fram yfir sjávarútvegssýninguna í næstu viku... Wúhú!

Svo má nú ekki gleyma öllum hinum afmælunum í þessum mánuði (Meyjurnar rúla!)...
Magga og Ólöf tvíbbarnir mínir elskulegu...
Systurnar Guðrún Erla og Elísabet frænkur mínar...
Sighvatur frændi...
Erna Lind vinkona...
og Elín Tinn frænka varð tvítug!

Svo segi ég bara - sjáumst um helgina!!!

Saturday, August 30, 2008

Sameinuð á ný

Góðan og blessaðan daginn... long time no see!
Ég er sem sagt komin aftur til Nýfundnalands og í þetta skiptið er Wissler með mér, sem er náttúrlega tvennt ólíkt. Frábært að vera búin að fá hann til mín... þessi fjarbúð er nefnilega eilítið leiðinleg til lengdar. Hundurinn kemur um miðjan september og þá verður öll fjölskyldan sameinuð á ný :)
Sumarið var æðislegt og vil ég þakka öllum fyrir samveruna (sem er aldrei nógu mikil, sama hversu langt fríið mitt er)... og ég er búin að henda inn fleiri myndum fyrir þá sem vilja sjá hvað ég gerði. Alltaf svo gaman að því hvað maður ferðast um sitt eigið land þegar útlendingar koma í heimsókn :)
Eftir að ég fór út komu fleiri útlendingar til Íslands, en Ólöf systir var svo góð að "sjá um" Thomas Wissler, bróðir Wisslers míns, og vin hans. Mér heyrist að þeir séu í skýjunum með ferðina, og þakka ég systur minni kærlega fyrir gestrisnina!
Svo átti mamma fimmtugsafmæli um miðjan ágúst (TIL HAMINGJU ENN OG AFTUR!) og afmælið sem fyrst átti ekki að vera haldið, en varð svo að smá kaffiboði, og endaði í yfir hundrað manna veislu á menningarnótt með Stebba og Eyfa með tilheyrandi umfjöllun í Mogganum! En ég er svo ánægð að mamma lét til leiðast og hélt upp á þetta - því hún hefur víst brosaði í hringi síðan :)
Handboltalandsliðið okkar var líka að gera góða hluti og við Íslendingarnir hér í St. John´s vorum álíka spennt og landinn á Fróni. Lítið unnið í vinnunni þegar leikurinn við Spánverja fór fram (urðum að láta okkur textalýsingu mbl nægja því það var ekki hægt að horfa á það á netinu... WTF?!) og vaknað kl.5 á sunnudagsmorgun til að horfa á úrslitin sem voru sem betur fer sýnd á netinu (eini handboltaleikurinn sem var sýndur í Kanada). Þótt leikurinn hafi ekki verið góður var frábært að sjá strákana okkar komast svona langt. Maður hefur hreinlega verið að rifna úr þjóðarstolti síðan, og ég segi hverjum sem nennir að hlusta frá þessu :D
Annars gengur lífið bara sinn vanagang, Wissler er að leita sér að vinnu og í millitíðinni er ég að koma honum í netnámskeið í íslensku - hann er bara allur að koma til, svei mér þá :)
Bestu kveðjur heim - sérstaklega til Helga Hafsteins.. jú og til hinna afmælisbarna mánaðarins (Ingunn, Elín Óskars, Einar, Valgerður, Ingibjörg, Bára Karls) - vonandi verður nú ekki eins langt í næsta blogg ;)
Erla perla alltof langt í burtu

Thursday, July 17, 2008

Komin í smá blogg frí meðan ég er á Íslandi (tala alveg eins og ég blogga voða reglulega;) ). Allt gott að frétta. Eintóm hamingja. Familían öll saman, lítill prins kominn í heiminn, og Wissler mættur á svæðið. Magga systir og Jói eru sem sagt búin að eignast fallegasta strák í heimi.. og öll fjölskyldan ljómar. Svo er ég búin að taka vinkonahitting og kveðja Erlu Rut sem er nú farin í heimsreisuna sína. Fór í veiði og fékk maríulaxinn... og fjóra til! Endalaust gaman og ekki laust við að ég sé komin með bakteríuna eins og pabbi. Ólöf náði að plögga frænkudjamm sem kom mér algjörlega á óvart... sko aljörlega á óvart. Og hún náði meira að segja að láta mig leggja mig fyrst og gera mig til. Hún er algjör snillingur! Takk takk!
Svo á morgun er okkur boðið heim til eðalhjónanna Kristjáns og Jónu. Alltaf gaman að heimsækja þau. Og svo á laugardaginn er planið að fagna endurkomu Andrews nokkurs Wisslers til Íslands með góðu djammi.. sennilega í Reykjavík. Endilega verið í bandi á föstudag/laugardag ef þið eruð til (Kristín María... Erna Lind?).
Bestu kveðjur frá Þingvöllum!
Erla Ósk